Næstkomandi sunnudag kl. 20 mun Tríó Reykjavíkur koma fram ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara. Þau ætla meðal annars að flytja píanótríói eftir unga tónskáldið Gunnar Karel Másson sem er frumflutningur á Íslandi. Verkið sem nefnist Þrá Skalt Efla, var pantað af tónlistarhátíðinni “Sommerliche Musiktage in Hitzacker” og frumflutt þar í júlí 2009. Þetta eru fjórðu tónleikar starfsársins sem er 20. samstarfsár Hafnarborgar og Tríós Reykjavíkur. Að þessu sinni nefna þau tónleikana Skyggnst að rótum nútímatónlistar fram til vorra daga og endað á afmælisbarninu Schumann í dýrðlegri rómantík.
Hádegistónleikar í Hafnarborg 4. mars
Einn af okkar bestu baritónsöngvurum Ágúst Ólafsson kemur heitur af fjölum Íslensku óperunnar eftir að hafa slegið í gegn sem hershöfðinginn Belcore í Ástardrykknum. Ágúst ætlar að flytja aríur eftir Bellini, Mozart og Wagner á hádegistónleikum í Hafnarborg næstkomandi fimmtudaginn kl. 12. Með honum leikur Antonía Hevesi píanóleikari en hún er listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg.
Page 1 of 29
