Laugardaginn 16. janúar kl. 15 verða opnaðar tvær sýningar í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Í meginsölum safnsins er verk Ragnars Kjartanssonar Endalokin, sem er afrakstur þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum 2009. Í Sverrissal á fyrstu hæð safnsins er innsetningin Ljósbrot eftir Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur.


