Bjartir dagar fóru vel af stað á fimmtudaginn og framundan er fjölbreytt dagskrá. Í kvöld eru tónleikar með Sopranos í Hafnarborg kl 20:00, en píurnar í Sopranos leggja allt í sölurnar til þess að koma áheyrendum sínum í gott skap með fjörugri söngleikjatónlist, ódauðlegum dægurperlum og ófyrirgefanlega væmnum ástarsöngvum. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.


