• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Hádegistónleikar í Hafnarborg 4. mars

hafnarborgEinn af okkar bestu baritónsöngvurum Ágúst Ólafsson kemur heitur af fjölum Íslensku óperunnar eftir að hafa slegið í gegn sem hershöfðinginn Belcore í Ástardrykknum. Ágúst ætlar að flytja aríur eftir Bellini, Mozart og Wagner á hádegistónleikum í Hafnarborg næstkomandi fimmtudaginn kl. 12. Með honum leikur Antonía Hevesi píanóleikari en hún er listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg.

Ágúst hefur sungið á fjölda ljóðasöngstónleika hér heima og erlendis, auk þess sem hann hefur tekið þátt í uppfærslum íslensku óperunnar og í óperuuppfærslum Síbelíusar-akademíunnar.

Hádegistónleikar hafa verið fastur liður í starfi Hafnarborgar frá árinu 2003 en margir af fremstu söngvurum þjóðarinnar hafa komið fram á þeim. Þeim hefur verið mjög vel tekið og komast oft færri að en vilja. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir.

Í Hafnarborg er opið alla daga nema þriðjudaga frá 12 – 17 og á fimmtudögum frá 12 -21. Aðgangur er ókeypis. www.hafnarborg.is

media_top
Dim lights Download Embed Embed this video on your site
 

weather_top
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain
13C 14C 14C
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur