Næstkomandi sunnudag kl. 20 mun Tríó Reykjavíkur koma fram ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara. Þau ætla meðal annars að flytja píanótríói eftir unga tónskáldið Gunnar Karel Másson sem er frumflutningur á Íslandi. Verkið sem nefnist Þrá Skalt Efla, var pantað af tónlistarhátíðinni “Sommerliche Musiktage in Hitzacker” og frumflutt þar í júlí 2009. Þetta eru fjórðu tónleikar starfsársins sem er 20. samstarfsár Hafnarborgar og Tríós Reykjavíkur. Að þessu sinni nefna þau tónleikana Skyggnst að rótum nútímatónlistar fram til vorra daga og endað á afmælisbarninu Schumann í dýrðlegri rómantík.
Gestaflytjandi á tónleikunum verður Bryndís Halla Gylfadóttir sólósellóleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún mun ásamt Guðnýju Guðmundsdóttur konsertmeistara leika hið stórbrotna dúó eftir ungverska tónskáldið Zoltán Kodály.Verkið var samið árið 1914 og skilja nær hundrað ár þessi tvö fyrstu verk tónleikanna að. Að lokum verður afmælisbarninu Robert Schumann gerð góð skil með flutningi á píanótríói hans númer 2 í F-dúr, en 200 ár eru nú liðin frá fæðingu hans. Auk þeirra Bryndísar Höllu og Guðnýjar er það Peter Máté píanóleikari sem kemur fram á tónleikunum.
Gunnar Karel Másson (f.1984) hóf tónlistarnám ungur í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, lærir nú tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og lýkur þaðan B.A. gráðu í tónsmíðum vorið 2010. Hann hefur samið tónlist fyrir Þjóðleikhúsið og Nemendaleikhús LHÍ. Hann hefur einnig skrifað verk fyrir Kammersveitina Ísafold. Flutt hafa verið verk eftir Gunnar Karel á tónlistarhátíðum bæði hér heima og erlendis, Myrkir Músíkdagar 2010, Hitzacker Musiktage 2009, Við Djúpið 2009 og UNM 2009. Bryndís Halla Gylfadóttir hóf ung sellónám, lærði bæði á Íslandi, Kanada og í Bandaríkjunum. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga s.s. Tónvakaverðlaun Ríkisútvarpsins og íslensku tónlistarverðlaunin í þrígang. Hún er meðlimur í Tríó Nordica, Caput og í Tangósveit Oliviers Manoury.
Miðapantanir í síma Hafnarborgar 585 5790 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og kostar miðinn 2.400 kr. www.hafnarborg.is


