• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Gamla vínhúsið

Gamla vínhúsið sérhæfir sig í steik og sjávarfangi og er staðsett í hjarta Hafnarfjarðar.

Vesturgata 4 SJÁ KORT
220 Hafnarfjörður
S. 565 1130
F. 565 5130

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.gamlavinhusid.is


Veitingahúsið Fjaran

Take_a_break_004

Fjaran er opin fyrir matargesti alla daga frá kl. 18:00 við opnum fyrir hópa í hádeginu. Húsið er byggt 1841 og er næstelsta hús Hafnarfjarðar og tekur 40 manns í sæti á neðri hæð. Uppi er hlýleg setustofa og herbergi þar innaf með sæti fyrir 18 matargesti.

Fjaran er glæsilegur veitingastaður með rómantískum blæ og góðu útsýni yfir höfnina.

Strandgata 55 SJÁ KORT
220 Hafnarfjörður
Borðapantanir:
Sími: 565-1213
Fax: 565-1891

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.fjorukrain.is

 


Fjörugarðurinn

Take_a_break_004Umgjörðin er glæsilegur veitingastaður sem engan á sinn líka. Hann er skreyttur með yfir 100 uppstoppuðum dýrum. Þar er líka að finna 1200 lítra fiskabúr sem er fyrir ofan 16 metra langan útskorinn bar. Veggir eru skreyttir víkingamunum og myndum eftir Hauk Halldórsson. Allur tréskurður er unnin af íslenskum handverksmönnum. Eins hafa erlendir útskurðarmenn lagt lið við útskurð á skreytingum og skurðgoðum.
Fjörugarðurinn er opinn fyrir matargesti frá kl. 18:00-22:00 alla daga en þá lokar eldhús staðarins. Barinn er hins vegar opin til 01.00 öll kvöld vikunnar. Boðið er uppá Víkingaveislur öll kvöld vikunnar, auk þess sem gestir geta valið af sérréttarseðli.

Strandgata 55
220 Hafnarfjörður
Borðapantanir:
Sími: 565-1213
Fax: 565-1891


Café Aroma
Þægilegur veitingastaður í hjarta Hafnarfjarðarbæjar þar sem góð þjónusta, tónlist og spennandi matargerð skapa notalega stemmingu.Veitingarnar okkar einkennast af léttu samspili hefðbundinna og framandi rétta þar sem greina má áhrif frá öllum heimshornum. Áherslan er lögð á fjölbreytni til þess að viðskiptavinir okkar geti á öllum tímum fundið það sem freistar.Yfir daginn er súpu og salatbarinn vinsæll auk smárétta en matarmiklar samlokur, kjöt og sjávarfang þegar kvöldar. Tertuborðið freistar með kaffinu auk úrvals annarra ís- og eftirrétta. Á barnum er að finna léttvín og bjór í úrvali auk heitra og kaldra drykkja.

Frá glæsilegum og björtum veitingasal okkar er einstakt útsýni yfir höfnina ekki síst þegar gefur að líta stórkostlegt sjónarspilið þegar sólin gengur til viðar með skip og báta í forgrunni.

Café Aroma er staðsett í verslunarmiðstöðinni Firði SJÁ KORT
Sími: 555-6996
www.aroma.is

media_top
Dim lights Download Embed Embed this video on your site
 

weather_top
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain
13C 14C 14C
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur