• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Fróðleiksmolar um Íslenska hestinn

 

vikingur_og_hestur_010Íslenski hesturinn er svo sannarlega einstakur – hreinræktaður og náttúrulegur, einangraður langt norður í Atlantshafi.Hann elst upp í landi þar sem loftið er tært og landslagið stórfenglegt, í frjálsræði stóðlífsins sem mótar hann og gerir hann hugrakkan og sjálfstæðan. Íslenski hesturinn skipar stóran sess í hugum þjóðarinnar og hann er sýnilegur í listum

og menningu í gegnum söguna alla. Hann hefur verið hreinræktaður í þúsund ár, meðhöndlaður af virðingu og lyft á efsta stall með markvissri ræktun og stefnumótun. Hann á sérstakan stað í hjörtum Íslendinga. Íslenski hesturinn er gáfaður, góðlyndur, fjölhæfur og fallegur. Hann er skrautlegasti hestur í heimi þegar kemur að litafjölbreytni því í íslenska

hestastofninum má finna yfir 40 liti og 100 litaafbrigði. Ólíkt öðrum kynjum býr hann yfir fimm gangtegundum, þar á meðal hinu magnaða tölti. Hann er sterkur og ákveðinn, viljugur og geðgóður. Það er nánast óþekkt á Íslandi í dag að hestar bíti eða slái og slík hross eru aldrei notuð til ræktunar. Íslenski hesturinn er sjálfsöruggur, óhræddur í umferð og fljótur að læra. Íslenski hesturinn er sannarlega hestur fyrir alla, enda njóta heilu fjölskyldurnar hans

saman og kynslóðabilið er ekkert. Íslenski hesturinn hentar jafnt til frístundaútreiða, ferðalaga og til keppni á efsta stigi.

Þúsundir Íslendinga eiga hesta og njóta þess að ríða út og vera í samvistum við hesta sína. Ferðalög á hestbaki njóta aukinna vinsælda og íslenskir hestamenn leggja sig fram við að ganga vel um landið. Alls kyns keppni er í boði og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, frá byrjendaflokkum upp í toppkeppni á landsvísu. Íslenski hesturinn hentar til keppni í alls kyns hefðbundnum greinum íslenskra hestaíþrótta, auk greina úr klassískri reiðmennsku, s.s. fimi og hindrunarstökki. Hvar svo sem áhugi þinn liggur – þá finnur þú alltaf íslenskan hest sem hentar þér!

 

Saga íslenska hestsins er samofin sögu þjóðarinnar og má rekja hana allt aftur til landnáms á tíundu öld. Víkingar sem settust að á Íslandi komu með búfénað frá Evrópu og þar á meðal sín bestu hross af ýmsum uppruna. Flest hrossanna voru af germönskum uppruna. Heimildir segja að á þessum tíma hafi verið til hrossakyn í Norður-Evrópu, „Equus Scandinavicus“ og vilja sumir meina að íslenski hesturinn sé afkomandi þess hrossakyns, en aðrir telja hann náskyldan hinum breska Exmoor smáhesti. Þrátt fyrir að upprunalega hafi íslenski hesturinn verið af blönduðu kyni má segja að í dag sé hann einn hreinræktaðasti hestur í heimi vegna einangrunar sinnar. Íslenski hesturinn hefur ekki blandast öðrum kynjum í þúsund ár og í dag er aðeins eitt hestakyn að finna á Íslandi – íslenska hestinn.

Íslenski hesturinn hefur frá upphafi leikið lykilhlutverk í þjóðlífinu. Í heiðni var hann hátt skrifaður og kom víða fyrir í norrænni goðafræði. Margir norrænu guðanna áttu hesta og komu þeir víða við sögu. Frægastur var Sleipnir hinn áttfætti gæðingur Óðins. Áhrif hinna norrænu sagna eru enn mikil í hestamennskunni á Íslandi, enda heita mörg hestamannafélög í landinu nöfnum úr goðafræðinni sem og fjöldi hesta í landinu. Hesturinn kemur einnig oft fyrir í Íslendingasögunum enda gegndi hann stóru hlutverki á stríðstímum Víkinga. Víkingar báru mikla virðingu fyrir hestum sínum og góður hestur var lífsnauðsynlegur stríðsmanni. Oft voru hestarnir grafnir með vígamönnunum, fullbúnir reiðtygjum. Í aldaraðir var hesturinn eina farartækið á Íslandi og mikilvægasta vinnudýrið og þess vegna hefur hesturinn verið kallaður „þarfasti þjónninn“. Hann fylgdi manninum frá fæðingu til grafar, sótti ljósmóðurina og dró kistuna til kirkju. Þegar fyrsti bíllinn kom til Íslands árið 1940 varð hesturinn fljótt úreltur í fyrri hlutverkum. Hins vegar héldu nokkrir hestaáhugamenn merkjum hans á lofti og næstu ár var aukin áhersla lögð á ræktun íslenska hestsins sem reiðhests.

 

Texti er tekinn úr bæklingnum Íslenski hesturinn sem gefin er út af Félagi hrossabænda. Bæklinginn ásamt öðrum nytsamlegum upplýsingum um Íslenska hestinn má finna á vefsíðu félagsins www.fhb.is

 

media_top
Dim lights Download Embed Embed this video on your site
 

weather_top
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain
13C 14C 14C
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur