• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Víkingabærinn

Víkingurinn Hrafna Flóki kom til Hafnarfjarðar um 860 en hafði stutta viðdvöl. Samkvæmt Landnámabók, helstu heimild Íslendinga um landnám Íslands, var fyristi landnámsmaður Hafnarfjarðar Ásbjörn Özurarson. Hann er talinn hafa verið einn af þeim landnámsmönnum sem fengu jarðir að gjöf eða námu í landeign frænda sinna. Ásbjörn var bróðursonur Ingólfs Arnarsonar. Landnám Íslands er einn merkasti atburður víkingaaldar þótt landnámsmennirnir hafi nær aldrei þurft að berjast til að eignast hér bújarðir.

Á síðustu árum hafa nútíma víkingar látið til sín taka í Hafnarfirði. Í bænum er nú eini víkingaveitingastaðurinn og hótel á Íslandi. Á Fjörukránni er boðið uppá líflegar víkingaveislur, víkingarán, söng og gleði og í meira en áratug hefur Fjörukráin haldið árlega víkingahátíð í júní sem sótt er af víkingum víðsvegar úr heiminum. Á víkingahátíð leiða saman hesta sína bardagamenn og bogaskyttur, glímumenn, útskurðarmenn, steinhöggvarar,  járnsmiðir, sögumenn, seiðkonur, tónlistarmenn og galdramenn. Það er óhætt að fullyrða að á hátíðinni ríki sannkölluð miðaldastemning, gleði og glaumur. Sjá nánari upplýsingar um víkingahátíðina á www.fjorukrain.is

14        DSCN1884       3

media_top
Dim lights Download Embed Embed this video on your site
 

weather_top
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain
13C 14C 14C
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur