Íslandsvinir/Iceland Explorer er ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjandi í Hafnarfirði með öll tilskilin leyfi.
Skipuleggjum ferðir til Hafnafnarfjarðar og um allt Ísland fyrir Íslendinga.
Seljum skipulagðar hópferðir til útlanda, - einnig klæðskerasaumaðar utanlandsferðir fyrir fyrirtæki og sérhópa.
Sjá vefsíðu okkar: www.explorer.is eða www.islandsvinir.is
Taktu rúnt um Fjörðinn
Er ekki tilvalið að hefja góðan dag á sundspretti? Í Hafnarfirði getur þú valið um þrjár mismunandi sundlaugar
Þú getur eigrað um söguslóðir með í boði Byggðasafni Hafnarfjarðar – opið daglega í júní, júlí og ágúst – ókeypis aðgangur! www.hafnarfjordur.is/byggðasafn
Hefur þú skoðað útilistaverkin í Hafnarfirði?
Hefur þú gengið upp á Hamarinn og notið útsýnisins?
Það geta langflestir gengið á Helgafellið, fjall Hafnarfjarðar. Frábært útsýni og að sjálfsögðu bergja allir á hinu frábæra vatni Kaldárinnar á leiðinni upp og í bakaleiðinni.
Það er alltaf hressandi að fá sér göngutúr um hafnarsvæðið og njóta umhverfisins www.hafnarfjardarhofn.is
Hvernig væri að næla sér í ómótstæðilega menningu? Listamiðstöðin Hafnarborg opnar kl. 11 alla daga nema þriðjudaga – aðgangur ókeypis. www.hafnarborg.is
Það er upplifun að heimsækja Seltún og Krýsuvíkina alla og njóta litadýrðar, bullandi hvera svo ekki sé talað um eitt stærsta fuglabjarg á Íslandi.
Bæjarbíó sýnir klassískar myndir alla þriðjudaga og laugardaga, miðaverð aðeins kr. 500 www.kvikmyndasafn.is
Á milli vita er gönguleið sem hlykkjast um miðbæ Hafnarfjarðar á milli merkilegra sögustaða og menningarminja. Nældu þér í kort í Þjónustuverinu.
Það er engin tilviljun að það er alltaf troðfullt hús í Hafnarborg á hádegistónleikum, mættu snemma og njóttu þess að hlýða á frábæran söng einu sinni í mánuði án endurgjalds.
Byggðasafnið stendur fyrir sögulegum fróðleiksfundum undir heitinu; Fróðleiksmolar Byggðasafnsins. Fylgstu vel með dagskránni.
Á Bókasafni Hafnarfjarðar eru starfandi spennandi bókaklúbbar. Sjá heimasíðu Bókasafnsins www.hafnarfjordur.is/bokasafn
Hafnarborg stefnir saman listamönum og gestum í vel heppnuðum listasmiðjum með reglulegu millibili.
Í sumar verður boðið upp á ratleik fyrir alla fjölskylduna um miðbæ Hafnarfjarðar.
Tilvalið að fara í ævintýraferð um svæði Skógræktar Hafnarfjarðar og taka síðan einn hring í kringum Hvaleyrarvatn.
Hvernig væri að koma við í húsi Rauða krossins og taka þátt í því fjölbreytta starfi sem þar fer fram. Kynntu þér málið á heimasíðunni www.redcross.is
Kleifarvatn
Kleifarvatn er um 10 km2 að flatarmáli og stærsta stöðuvatn á Reykjanesskaga. Það er í lægð milli Sveifluháls í vestri og Vatnshlíðar í austri. Aðrennsli í vatnið er takmarkað og ekkert frárennsli er sjáanlegt ofanjarðar. Vatnsborðið fylgir grunnvatnsborðinu sem sveiflast um allt að 4 m á tugum ára. Áður fyrr þóttust menn verða varir við kynjaveru líka stórum ormi í vatninu, svokallað Kleifarvatnsskrímsli.


