• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Líkamsrækt og sund

Þrjár almenningssundlaugar eru í Hafnarfirði og ættu allir að geta fundið sundlaug við sitt hæfi

 Sundhöll Hafnarfjarðar er með yfirbyggðri 25 metra laug, 2 heitum pottum utandyra ásamt góðri sólbaðsaðstöðu og tveimur saunaklefum fyrir sitthvort kynið.

Opnunartími: virka daga 6:30-21:00, helgar 8:00-12:00. Sími 555 0088.

Suðurbæjarlaug státar af 25 metra útisundlaug ásamt þremur heitum pottum, vaðlaug ásamt leiktækjum fyrir yngstu börnin, tvær rennibrautir og eimbað. Innandyra er 12 metra barnalaug. Nautilus heilsurækt starfar í húsinu.

Opnunartími: virka daga 6.30-20:30, laugardaga 8:00-18:00, sunnudaga 8:00-17:00. Sími 565 3080.

Ásvallalaug býður uppá yfirbyggða 50 metra sundlaug ásamt 16 metra barnalaug, vaðlaug með leiktækjum fyrir yngstu börnin, þrír heitir pottar og eimbað. Utandyra eru tveir heitir pottar ásamt rúmgóðri sólbaðsaðstöðu. Hress heilsurækt starfar á efri hæð hússins.

Opnunartími: virka daga 6:30-20:30, laugardaga 8:00-18:00 og sunnudaga 8:00-17:00. Sími 512 4050.

 

media_top
Dim lights Download Embed Embed this video on your site
 

weather_top
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain
13C 14C 14C
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur