• JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR

Byggðasafn Hafnarfjarðar er minja- og ljósmyndasafn Hafnarfjarðarbæjar. Hlutverk þess er að safna, skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka muni og minjar um menningarsögu svæðisins og kynna þær almenningi. Minjasvæði Byggðasafnsins er Hafnarfjörður og nágrenni hans. Byggðasafn Hafnarfjarðar er með sýningaaðstöðu í sex húsum og að jafnaði eru níu sýningar í gangi í einu.


PAKKHÚSIÐ: 33473_pakkkk
Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu,fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning og þemasýning. Á sýningunni „Þannig var...” er saga Hafnarfjarðar og nágrennis rakin frá landnámi til okkar daga með aðstoð
sagnfræðilegra texta, ljósmynda, teikninga, kvikmynda og fjölda muna sem glæða söguna lífi.

OPNUNARTÍMI;
Vetur: laugardaga og sunnudaga kl. 11:00 – 17:00
og fimmtudaga kl. 11:00 – 21:00
Sumar: alla daga kl. 11:00 – 17:00
nema fimmtudaga kl. 11:00 – 21:00

 


BUNGALOWIÐ:33477_bungo
Bungalowið var byggt sem íbúðarhús fyrir skosku bræðurna Harry og Douglas Bookless árið 1918 en þeir ráku umfangsmikla útgerð frá Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Þeir voru áhrifamiklir og langstærstu atvinnurekendur í bænum um árabil.
Eftir daga Bookless Bros tók annað breskt fyrirtæki, Hellyer Bros Ltd, frá Hull við eignum fyrirtækisins og rak blómlega útgerð um tíma. Húsið var opnað eftir endurbætur árið 2008 og er þar að finna sýningu um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar auk þess sem þar má sjá stássstofu þeirra Booklessbræðra.

OPNUNARTÍMI;
Vetur: Opið um helgar frá 11.00 - 17.00.
Sumar; Alla daga frá 10.00 - 17.00.


SÍVERTSENS- HÚSIÐ: 33481_siva
Sívertsens-húsið er elsta hús Hafnarfjarðar, byggt á árunum 1803-1805 af Bjarna Sívertsen. Hann var mikill athafnamaður í Hafnarfirði á árunum 1794-1830 og rak þá útgerð, verslun og skipasmíðastöð í bænum.
Bjarni var einn af fyrstu Íslendingunum til að fá verslunarleyfi hér á landi eftir daga einokunarverslunarinnar og hefur
fengið viðurnefnið „faðir Hafnarfjarðar”. Húsið hefur verið gert upp í upprunalegri mynd og er þar sýnt hvernig yfirstéttarfjölskylda
í Hafnarfirði bjó í byrjun 19. aldar, auk þess sem varpað er ljósi á merkilega sögu Bjarna Sívertsens og fjölskyldu hans.

OPNUNARTÍMI:
Vetur; Lokað ( Opið fyrir hópa )
Sumar: alla daga kl. 11:00 – 17:00


BEGGUBÚÐ: 33485_beggab
Í Beggubúð er verslunarminjasafn Byggðasafns Hafnarfjarðar. Húsið,sem byggt var árið 1906, stóð áður við aðalverslunargötu bæjarins en var flutt á lóð safnsins, gert upp og opnað sem sýningahús árið 2008

OPNUNARTÍMI;
Vetur; Lokað ( Opið fyrir hópa )
Sumar: Alla daga frá 11.00 - 17.00.

 


SIGGUBÆR; 33489_siggub
Erlendur Marteinsson sjómaður byggði Siggubæ árið 1902. Dóttir hans,Sigríður Erlendsdóttir,
var tíu ára gömul þegar hún flutti í húsið og bjó þar allt til ársins 1978, þegar hún fluttist á elli- og hjúkrunarheimilið Sólvang. Bær hennar er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns og sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar,
þar sem hægt er að upplifa og kynnast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.

OPNUNARTÍMI;
Vetur; Lokað ( Opið fyrir hópa )
Sumar: laugardaga og sunnudaga kl. 11:00 – 17:00

 


GÓÐTEMPLARAHÚSIÐ; 33493_gutto3
Góðtemplarahúsið, sem í daglegu tali er kallað Gúttó, var byggt árið 1886 og þótti stórt, rúmaði um 300 manns en þá bjuggu rúmlega 400 manns Í Hafnarfirði. Góðtemplarahúsið var fyrsta eiginlega samkomuhús Hafnfirðinga og um langan tíma miðstöð allrar menningar í bænum. Þar fór fram félagsstarf Góðtemplarareglunnar, auk funda og skemmtana annarra félaga. Í húsinu var fyrsti fundur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar haldinn. Í Góðtemplarahúsinu er að finna sýningar er snúa að íþrótta- og félagssögu Hafnarfjarðar.

OPNUNARTÍMI;
Vetur: Lokað ( Opið fyrir hópa )
Sumar; Opið um helgar frá 11.00 -17.00.


STRANDSTÍGURINN;

Á strandstígnum meðfram höfninni í Hafnarfirði er Byggðasafn Hafnarfjarðar með sýningaaðstöðu fyrir ljósmyndasafn sitt. Þar eru settar upp ljósmyndasýningar er varpa ljósi á dagleg störf og sögu fólksins sem bæinn byggði.

ATH sýningarnar eru opnar fyrir hópa á öðrum tímum, tímapantanir eru í síma 585 5780


Skrifstofa safnsins er opin virka daga kl. 08:00 – 16:00.

Byggðasafn Hafnarfjarðar,
Vesturgata 8, 220 Hafnarfjörður,
S: 585 5780,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Hafnarborg_logo HAFNARBORG

bustir_me_merki-300_4819

Hafnarborg varðveitir listaverkasafn Hafnarfjarðar og er rekin af Hafnarfjarðarbæ. Í safninu eru þrír sýningarsalir auk sýningaraðstöðu í kaffistofu og í anddyri. Á efri hæð er 375 m 2 salur og tveir á neðri hæð, annar um 120 m 2 og hinn um 90m 2 . Ár hvert eru um 20 myndlistarsýningar settar upp ísafninu. Sýningar eru á verkum úr safni Hafnarborgar og einnig eru haldnar fjölbreyttar sýningar á íslenskri og erlendri samtímalist. Sýningar sem koma erlendis frá eru unnar í samvinnu við listasöfn, menningarsjóði og stofnanir erlendis. Verk úr safni Hafnarborgar eru m.a. sett upp á skrifstofum og stofnunum Hafnarfjarðarbæjar. Öflugt fræðslustarf er í tengslum við sýningar.

Í Hafnarborg er starfandi fræðslufulltrúar. Upplýsingar um sýningar eru sendar skólunum vor og haust. Leiðsögn fyrir nemendur þarf að panta með fyrirvara.

Tónleikahald er stór liður í starfsemi Hafnarborgar og aðstaða er til ráðstefnu og fundarhalds.  Hafnarborg rekur einnig vinnustofu og íbúð fyrir gestalistamenn.

Í Hafnarborg er glæsileg kaffistofa, Maður lifandi, á 1. hæð. Kaffiveitingar allan daginn en léttir réttir og grænmetisbar í hádeginu.

Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
Opið alla daga kl. 11–17
og fimmtudaga til kl. 21.
Lokað á þriðjudögum.

www.hafnarborg.is

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sími 585 5790

DSCF3372

Auur

media_top
Dim lights Download Embed Embed this video on your site
 

weather_top
Mostly Cloudy Showers Rain
14C 13C 11C
Föstudagur Laugardagur Sunnudagur